hvolpar
Mamma og pabbi ætla að fá sér hund sem mér finnst æðislega hugmynd.
Núna erum við bara að leita af draumaprinsinum eða prinsessunni.
Veit einhver um einhver sem á hvolpa sem fást gefins eða ódýrt.
viljum hund sem verður ekki mjög stór.. sirka 40 cm að herðarkambi er fínt.
Ef þið vitið um einhvern plís plís plís látið mig vita.
En Cavalier er klárlega draumahundurinn en hann kostar 150-200 þús kall sem er heldur of mikið.
en guð sjáiði bara hvað þetta er fallegt!!


sniff sniff langar í..
en verið dugleg að leita af hvolpagotum eða verðandi hvolpagotum í kringum ykkur.
love elva
réttu mér gúrkublaðið!!!
Dísus sko um daginn þá var frétt á mbl um að einhver kona sem bæ ðe vei enginn veit hver er nema þið vitið kannski fjölskyldan hennar og vinir var með tannpínu heila helgi en náði ekki í neinn tannlækni.. hmm hvað í því kallast fréttnæmt.. jújú kannski hneykslanlegt að enginn tannlæknir gat hjálpað henni en hefði fréttin þá ekki átt að vera um hversu erfitt er að ná í tannlækna um stórar ferðahelgar en ekki konu sem fékk tannpínu greyið og fann til heila helgi..
ég meina það er fullt af fólki sem er að finna til útaf ýmsum kvillum en það á ekki heima í fréttum þegar einhver finnur til..
svo núna í kvöld kom frétt um að kona datt af hestbaki.. oooog!!!! hvað er frétt við það.. vó nei hey shitt heyrðiru um konuna sem datt af hestbaki og meiddi sig í mjöðm... svona er fréttin
Kona féll af hestbaki norðan við Skagaströnd í dag. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi kenndi konan eymsla í mjöðm og var hún flutt á sjúkrahúsið á Blönduósi til nánari skoðunar.
ok ef hún hefði dáið eða stórslasast væri það frétt en djísus maður..
Gúrkutíð jafnvel??
Allavega ég bara varð að koma þessu út.. fjúff þungt farg farið ..
Annars langar mig að forvitnast aðeins um ykkur fáu hræður sem lesa þetta blogg,..
hvað er það sem fólk gerir sem fer mest í taugarnar á ykkur.??
Ekki svona persónueinkenni spurning heldur svona hvað fólk gerir..
Hjá mér er það til dæmis það að það er fátt sem pirrar mig meira en fólk sem smjattar alveg svakalega eða er að borða eitthvað þegar það er að tala við mann í síma.. veit ekki af hverju en þessir hlutir fara alveg svakalega í mig.. og já greinilega miðað við þessa færslu fréttamenn sem setja inn fréttir sem breyta engu fyrir mann..
og hananú. smá pirringsblogg..
If I found it I would drive so far...
From here
The city streets are dim
In my hands, attempted once again
To give in
I'm having trouble seeing
I'm punch-drunk, and I need to find a way back home
It'd be a miracle, if you'd oblige
I will survive
On this island, I am stuck
Could you correct
My crooked luck tonight?
I'm on the road, and my thumb is out
I'm hitching home
Tonight I am without
A name
Where was it that I lived?
Nevermind, just take me with you and forgive...
My lack of information
I'm punch-drunk, and I need to find a way back home
It'd be a miracle, if you'd oblige
I will survive
On this island, I am stuck
Could you correct
My crooked luck tonight?
I will survive
Tonight I wander, and I roam
Just looking for
A way back home
Tonight
The sun is coming up
I think I've had my fill
Wait, who the Fuck are you?
Where did I park my car?

Komin heim aftur.. skemmtilegt skemmtilegt skemmtilegt úti ..
Ég hugsaði oft um að blogga þegar ég var úti en ég nennti því ekki þannig ég segi ykkur bara frá ævintýrinu núna en ætla samt ekki að fara út í nein smáatriði því þá myndi bloggið ná til enda internetsins.
Ég fór semsagt út 18. júlí til Sylvíu minnar í Barcelona og Svala systir hennar var þar einnig.
Þær bjuggu í (sylvía býr þar enn) íbúð með slatta af strákum og tveimur öðrum stelpum, stelpurnar voru samt ekkert heima fyrr en seinni partinn í viku 2. Það er doldið flókið hverjir bjuggu þarna og hverjir voru að gista á sófanum en stákarnir sem voru þarna þann tíma sem ég var voru alls 7 að mig minnir og voru frá allskonar löndum.. þetta var alþjóðakokteill, Mexíkó, Portúgal, Ítalía, Slóvakía og svo Ísland auddað.. Sylvía ég er að gleyma einhverju þá bætir þú því kannski við hehe..
En já þetta var allt hið frábærasta fólk og tóku allir mjög vel á móti mér. Mér leið mjög vel þarna með þeim.. voðalega góð kommúnustemning. Ekki skemmdi fyrir að strákarnir voru duglegir að spila á gítar og það bara elska ég.. en íbúðin skiptist í gang, 6 svefnherbergi, 2 baðherbergi + 1 klósett sem eiginlega enginn notar held ég, stofu, eldhús og risaverönd.
Við stelpurnar vorum í besta herberginu bæði því það var stærst og lengst frá stofunni þannig við vorum í smá private þarna.. við skemmtum okkur stórkostlega allan tímann og það vantaði ekki góðar uppákomur.
Við fórum oft í bæinn í verslunarleiðangra eða bara til að hanga og labba um, fórum í stóra almenningsgarðinn sem ég get aldrei munað hvað heitir hehe.. Fórum í dýragarð sem var ekkert smá gaman, þetta er flottasti dýragarður sem ég hef komið í en ég hef annars eiginlega bara komið einu sinni áður í dýragarð.. sá fullt af dýrum sem ég hef aldrei séð áður, gíraffa, ljón, fíl, panther, jagúar, flóðhesta, nashyrninga, apa og fullt fullt fleir..
Fórum í tívolí sem er upp á fjallinu Tibidabó sem var ógeðslega gaman einnig.. besta tækið er nú bara tæki sem mig langar að hafa í garðinum hjá mér og fara í á hverjum degi.. við fórum hvorki meira né minna en 6 ferðir í það tæki.
Svo var kíkt á ströndina í 4 skipti en það er nú ekki í uppáhaldi hjá mér nema þegar ég er í sjónum mér finnst það æði.. gleymdi mér einn daginn á vindsæng úti í sjó og brann á bakinu.. hehe úps..
Við vorum duglegar að elda okkur sjálfar kvöldmat en kíktum líka stundum út að borða, en svo einnig grilluðum við tvisvar sem tókst líka með eindæmum vel... hamborgara í fyrra skiptið og kjöt og grænmeti á pinna í seinna skiptið og þá buðum við Fannari og Katrínu einu íslensku pari sem býr í Barcelona að borða með okkur.
Hér koma nokkrir punktar sem ég nenni ekki að segja frá nánar en á þann veg:
- Fórum í partý þar sem veröndin hallaði það mikið að það var erfitt að sitja á þeim
- Það var sveitt og heitt allan tímann
- Ég fékk 6 moskítóbit, öll sama kvöldið, var síðan dugleg að spreyja á mig fæluspreyi
- Einu sinni sátum við í almenningsgarðinum þegar einhver maður kom með börnin sín og vildi taka mynd af börnunum sínum með okkur stelpunum sem hann síðan gerði

- Eitt sinn sat ég við eldhúsborðið að undirbúa matinn og sat of framarlega eða eitthvað á stólnum þannig hann steyptist fram og ég datt niður nema það var svo stutt í skápana fyrir aftan að ég klemmdist á milli borðsins og stólsins

- Pepe, strákurinn sem tekur við leigunni og sér um húsnæðið þannig séð er líkur Magna í Á móti sól
- Þarna bjó brjálaður hundur sem heitir Chula en er samt algjört yndi. hún og vatn er eitt það fyndnasta combó ever.. (lengri saga að segja frá því)
- Gerðum sangríu bollu í risarisastórum potti.
- Það var laus flís á gólfinu þegar maður labbaði inn í stofu og það var ekki hægt að stíga ekki á hana eða þannig haha.. heyrðist skemmtilegt hljóð þegar stigið var á hana og fólk duglegt við það hehe..
- Sylvía fékk kúluhné eftir að moskító beit hana tvisvar í hnéð
- Metró er snilld
- Síðasta daginn fórum við Sylvía óvart í vitlausa metró.. föttuðum það rétt áður en dyrnar lokuðust og náðum að stökkva út
- Cerveza, cola, aqua, Cerveza, cola, beer..
- Fólk hengir geisladiska út á svalir hjá sér til að láta ljósið speglast í þeim (hef ekki hugmynd why that is important)
- Aparnir í dýragarðinu voru æði... einn simpansi stakk þumlinum á sér inn í rassinn á öðrum.. spes!
- Sáum flóðhest skíta.. það er bara fyndið og viðbjóðslegt
- Where are all the penguins!?
- Heimagert Guacamole er svoooo gott!!
- Sillí, Svallí og Ellí!!
- Nenni ekki að setja inn neinar myndir hérna en set inn myndir bráðlega á myspace og facebook!!
chao!
gulrætur og astazan!
Eigum við að ræða það eitthvað að það er ekki nema vika í að ég breytist í farfugl og held á heitari slóðir.
Shiiiiiiii!!!! hvað ég hlakka mikið til..
Ég hef verið að reyna að undirbúa mig andlega undir það að fara vera í allt allt öðruvísi loftslagi og þurfa að vera sveitt allan sólarhringinn. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá þoli ég ekki að vera í miklum hita. Ég hef svona aðeins verið að reyna að undirbúa húðina mína líka fyrir sólina, við höfum nú verið mjög heppin með sólina hérna heima og hef ég verið mikið úti í sólinni á daginn á leikskólanum, erum alltaf úti allan daginn.
Síðan er ég byrjuð að taka astazan töflur og ét gulrætur á hverjum degi, reyni allt sem hugsanlega gæti mögulega öggupínulítið hjálpað mér við að verða brúnni..
Kvíði fyrir því að ég á eftir að vera eins og endurskinsmerki á milli Sylvíu og Svölu hehe..
Astazan eru töflur sem eru fyrst og fremst exercise relief en einnig sólarvörn (smá) og hjálpa manni að verða brún fyrr.
eins og ég segi þá prófa ég allt.
Vona bara að það verði ekki flugdólgur í vélinni, búin að prófa að lenda með einum þannig einu sinni og þarf ekkert að prófa það aftur. hehe
Annars fór ég til Þingeyrar síðustu helgi (átti afmæli á Laugardeginum), mamma og pabbi fóru á undan þangað en ég fékk far með Laufeyju frænku, Emil kærastanum hennar og vinkonu hennar, þau sóttu mig kl 6 á föstdagsmorgninum og við tókum bátinn frá Stykkishólmi og keyrðum svo frá Brjánslæk. Það er mjög þægilegt ferðalag að fara svona með báti í stað þess að sitja í bíl í 6 tíma.
Það var mikið um dýrðir því það voru dýrfirðingardagar í gangi um helgina og víkingasvæðið var opið og ýmsar uppákomu frá föstudegi til sunnudags.
Á föstudeginum var verið að reyna að klára pöbbinn sem Raggi frændi á svo hægt væri að opna hann á laugardagskvöldinu, mála og parketleggja og allt bara tekið í gegn. Mamma ég og Daðína skruppum á Ísafjörð til að versla í matinn og svo var grillað og kallarnir unnu hörðum höndum við að koma upp klósettunum á Víkingasvæðinu,
Á laugardeginum, afmælinu mínu var strandblakmót sem stóð nánast allan daginn og var mjög gaman að fylgjast með því, ég vissi ekki að mér þætti blak svona skemmtilegt, var reyndar ekkert að spila sjálf því maður þurfti að skrá sig fyrirfram á mótið. Laufey frænka keppti og varð í öðru sæti eftir glæsilega baráttu í úrslitaleiknum. Pabbi keppti líka með Emil í liði og unnu þeir gullið (tekið skal fram að 2 lið kepptu í karlaflokki hehe). Súpa í garði var heima hjá Jimma frænda þar sem boðið var upp á mexíkóska súpu og ég held að yfir 200 manns hafi komið við í garðinum hjá þeim og fengið sér súpu, þau voru með gestabók til að vita nokkurn veginn fjöldann en svo var líka fullt af fólki sem gleymdi að skrifa í bókina þannig þetta var slatti af liði.
Síðan fékk ég köku sem amma bakaði með kertum og alles og afmælisöngurinn sunginn.
um kvöldið var svo grill og skemmtun á víkingasvæðinu þar sem um 500 manns voru saman komnir til að njóta hátíðarinnar, einhverjir sungu og spiluðu uppi á sviði og héldu stemningunni uppi. Þórður frændi lúmski púkinn "laumaðist" upp að sviðinu og hvíslaði að þeim að ég ætti afmæli, þá tóku þau á sviðinu sig til og sungu og spiluðu afmælisönginn fyrir mig fyrir framan 500 manns, og ég var látin standa uppi á borði.
Hehe það var spes.
Seinna um kvöldið var partý heima hjá Helga frænda og svo var haldið á ball, ég hélt mig nú fyrst bara til við borðið með bjórinn góða en eftir ítrekaðar tilraunir Helga til að fá mig til að dansa aðeins 15 dansa við sig náði hann að bókstaflega draga mig niður á dansgólf og þar dansaði ég þar til ballinu lauk rúmlega 4. Það var ógeðslega gaman.
Síðan var haldið heim í þynnku daginn eftir.
Geðveikt skemmtileg helgi.
gott í bili.. ble!
BARA EIN VIKA EÐA 7 DAGAR
Kennari og læti bara!!
Maður er svo merkilegur.. og einnig að útskrifast á 100 ára afmæli skólans.. ekki slæmt þetta

Á laugardaginn var ég síðan með smá veislu heima og fékk fullt af flottum gjöfum, takk fyrir mig allir

Á mánudagskvöldið var mamma síðan með afmælisveislu heima og fagnaði 45 ára afmæli sínu með því að halda blómastelpupartý.. það var mjög fínt, fór ekkert á djammið eftir það eins og svo margir gera 16.júní heldur fór ég bara að sofa um hálf 2 og vaknaði 11 daginn eftir, hékk síðan heima en kíkti aðeins út. Mamma og karen og ég fórum síðan á rútstún í kópavoginum á tónleika kl 8-11 um kvöldið.
Þar voru fullt af ungum efnilegum krökkum að koma fram, m.a. á ég frænda sem spilar á gítar í einni hljómsveit sem ég man nú reyndar ekki hvað heitir sem spiluðu þarna nokkur lög, síðan kom annar frændi minn fram með gítar og söng 2 lög.. efnilegt fólk í fjölskyldunni

síðan spilaði hljómsveitin Buff og Ingó kom og söng nokkur lög m.a Bahama lagið sem er búið að tröllríða öllum á Íslandi og síðast en alls ekki síst komu regína og friðrik a.k.a eurobandið og tóku nokkur eurovision lög.. án efa bilað góð stemning þarna, alveg frá börnum 1 árs upp í eldgamalt krumpað fólk, bara snilld

Eigum við eitthvað að ræða um þessa ísbirni sem eru að heimsækja þetta fagra land okkar og eru skotnir fyrir vikið.. nei nei held ekki.. getum allavega sagt að þeir mega greinilega ekki vera íslandsvinir eins og önnur aðkomudýr sem koma hérna við...
Jæja núna hef ég lítið meira að segja annað þannig ég held ég segi þetta gott í bili..
30 dagar þar til ég fer til Barcelona
Barcelona here I come again!
Engin verslunarmannahelgi á íslandi, bara á Barcelona og það verður svo gaman, er auðvitað að fara heimsækja hana Sylvíu mína sem hefur ákveðið að vera þar í allt sumar og vinna.
Hefði nú alveg verið til í að fá hana heim en fyrst ekki þá fer ég bara til hennar. Hlakka alveg svakalega mikið til.

Ég fór með Elísu minni í bíó um daginn á Sex and the city og vá hvað hún er skemmtileg, fyndin, sorgleg, frábær og æðisleg. Hélt ég myndi pissa í mig úr hlátri yfir einu atriðinu. hehe úff,, langar að sjá hana strax aftur bara.
Kennslan í Fossvogsskóla er núna búin og byrja ég að vinna á skógarborg á mánudaginn. ég á nú eftir að sakna krakkanna úr bekknum sem ég var að kenna því þetta eru úrvalsnemendur og frábærir krakkar. Ætli maður kíkji ekki í heimsókn til þeirra næsta vetur og tjekkar á þeim. Hvort þau lendi ekki í góðum höndum hjá öðrum kennara.
Fór með kennurunum úr Fossvogsskóla á smá svona lokadjamm á föstudaginn, fórum með rútu frá fossó kl 12 á hádegi og fórum að álafossi í mosó þar sem við fengum okkur eitt stykki bjór og síðan þegar það átti að halda af stað þá fór rútugarmurinn ekki í gang og þurftum við að bíða eftir annarri rútu, svo kom önnur rúta og ferðin hélt áfram, fórum í hvalfjörðinn á hótel Glym þar sem við borðuðum súpu, salat og brauð. síðan var haldið áfram inn hvalfjörðinn og í bústað sem einn kennarinn átti, þar var drukkið og borðaðir ostar og spjallað og sprellað og mikið fjör.
Þar næst var brunað inn í hafnarfjörð heim til einnar þar sem makarnir biðu og voru búnir að grilla læri og þar var borðað dýrindis grillmatur og partý og stuð um kvöldið.
Þetta var mjög góður dagur og má nú alveg segja að ég muni sakna kennaranna líka.
Jæja nóg í bili í þetta sinn..
Jááááááá!!!!!
Vá hvað ég fagnaði þegar hún eða hann (man það ekki einu sinni) sagði ICELAND!! ég öskraði og mamma hló!!!
Vá ég var samt svo viss um að við myndum ekki hafa þetta því það voru svo mörg lög sem ég var viss um að myndu skora hátt en það kom margt á óvart í úrslitunum í kvöld t.d það að Georgía, Portúgal og Króatía hafi komist áfram .. þau áttu það ekki skilið, allt ömurleg lög og svo kom það mér á óvart að Búlgaría, Makedónía og Malta hafi ekki komist áfram.
En mér er alveg sama því að við erum komin áfram og það er það sem skiptir máli.. að fá að vera loksins með í stigagjöfinni er alveg mergjað!!
Annars gerði ég veðmál við krakkanna í bekknum sem ég kenni um að Tyrkland kæmist pottþétt áfram og þau bara ehh nei og ég sagði að ef Tyrkland kæmist ekki áfram þá myndi ég hlaupa stóra hringinn í fossvoginum og ég var orðin mjöööög stressuð þegar það var verið að lesa upp löndin sem komust áfram og það voru 2 sæti eftir og Tyrkland hafði enn ekki komist á listann en svo kom það og þá fagnaði ég aftur!!
Ahhh þetta er góð tilfinning.. vá hvað það hlýtur að vera geðveikt gaman í Serbíu núna hjá Íslendingunum.. Vá hvað ég öfunda Draupni núna shiiiiiitt!!! En líka maður lifandi hvað það voru mikil fagnaðarlæti í salnum sem ísland var að keppa því maður heyrði þau í gegnum lagið.. !!
Æi en það verður geðveiki í skólanum á morgun, krakkarnir eiga eftir að vera vitlaus úr æsingi,, en það er bara gaman.. góður æsingur!!
En já ég veit ekki hvað ég get sagt meir nema áfram Ísland og já vel á minnst.. ég er að fara í brúðkaup til Árna og Lovísu á laugardaginn þar sem verður partí um kvöldið heima hjá þeim og Árni gerði díl við mig um daginn!!.. hann sagði við mig að það yrði ekki horft á neitt helvítis eurovision og ég bara júú við verðum nokkrar frekar stelpur þarna sem eigum eftir að kveikja á þessu.. þá sagði hann ég skal gera díl við þig, ef ísland kemst áfram þá verður horft á það annars ekki.. VEI!!! það verður horft á EUROVISION!!!
Svo fer ég sko bókað niður í bæ því það verður örugglega geðveikt mikið stuð í bænum.. spurningin er að skella sér á NASA bara.. er það ekki málið .. jú held það nú bara!! hver vil koma með???

Ok vá þetta er bloggfærsla um Eurovision,, enda kemst ekki mikið annað að akkúrat núna.. en ég var samt alltaf á leiðinni að blogga um eitthvað en ég get bara engann veginn munað það núna hvað það var.. MY GOD
nema jú ég fékk mjög gott fyrir lokaverkefnið mitt í kennaraháskóla Íslands og er að fara útskrifast 14. júní
jájá svona er maður nú orðinn gamall!!!
Jæja þetta er nóg í bili!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Áfram Ísland!!!!
This is my life!!!!
Þetta er geðbilað flott og geggjað mega myndband vá sko.. Algjör perla híhí..
Þið getið horft á það hérna
http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=5994
Kötturinn minn er í þessum töluðu orðum að missa sig í breiminu, liggur uppi á borðstofuborði að velta sér um allt og veit ekkert í sinn haus hvað hún á að gera, sleikja sig hér, nei hér, nei á hinni löppinni, nei velta sér á bakið, nei elta skottið sitt, nei sleika á sér rassinn, nei hrynja niður á gólf í öllum þessum hamagangi.
Jæja þá er maður búin að eignast nýjan kagga takk fyrir takk.. Lexus hvorki meira né minna.. algjör magnet hehe.. segi nú sonna.. en mjög ánægð með þessa kerru.
Var að uppgvöta það mér til mikillar skelfingar að ég er búin að vera svo léleg í félagslífinu í kennó og meira segja það léleg að ég hef ekki mætt á neinn einasta viðburð í allan vetur.. iss shitt hvað hef ég verið að pæla my good.. en það er bjórkvöld næsta miðvikudag og þá verður blaðinu snúið við, ég mæti og læt ekki lítið fyrir mér fara.. ætla sko að sjá til þess að litla hávaðasama kennaravampíran sé mætt á svæðið.. þetta verður stórviðburður..
Shitt sko ég fékk alveg svona pínulítið sjokk í gær þegar ég fattaði að ég sakna elísu og sylvíu svo klikkað mikið.. vá ég var næstum búin að þurfa sækja mér bréfpoka til að anda í til að ofanda ekki.. öhö.. vá stelpur.. þið verðið að koma heim og það er bannað að fara svona í langann tímaí burtu í einu.. skamm.. litla hjartað mitt þolir þetta ekki lengur. STELPUR KOMIÐI HEIM!!!!!!!!!!!
En úr söknuði yfir í skólamál, ég var að koma lokaverkefninu mínu til prentarans en þarf reyndar að hitta hann einu sinni því við Vigdís gleymdum að segja honum frá einu sem við ætlum að láta gera. En annars er þetta bara allt að koma.. vá langþráð stund sko.. síðasti skiladagur er 29. apríl þannig þann dag vitiði að ég verð skoppandi hæð mína af gleði hehe..
Verð að láta texta úr einu incubus lagi sem ég elska útaf lífinu fylgja hér með
You are a fingernail, running down the chalkboard
I thought I left in third grade
Now my only, consolation, is that this could not last forever
Even though you're singing and thinking
How well you've got it made
Who are you?
When will you be through?
Yeah, it's just a phase... It will be over soon
Yeah, it's just a phase
Yeah, it's just a phase
Call it 'women's, intuition', but I think I'm on to something here
Temporaryism has been the black plague
And the Jesus of our age
I know that I sound opinionated, maybe biased
And quite possibly jaded
But sooner than later
They'll be throwing quarters at you on stage
Who are you?
When will you be through?
Yeah, it's just a phase... it will be over soon
Yeah, it's just a PHASE, and I'm waiting for it to be over TOO, yeah

Síðasta laugardag var afmæli hjá Sögu sætu snúllunni minni.. stúlkan var að ná tvítugsaldrinum.. til hamingju pæ.. það var geðveikt gaman þetta kvöld.. Það voru svona 50 manns í afmælinu hennar sem var haldið heima hjá henni og á tímabili var ég elsta þarna inni.. var kölluð aldursforseti einu sinni eða tvisvar og jelló gellan nokkrum sinnum þar sem ég kom með 75 jelló skot með mér sem kláruðust án gríns á 10 mínútum. síðan komu einhverjir þarna á mínum aldri. annars böggaði það mig ekkert sérstaklega að vera eldri en hinir.. lít allavega ekki út fyrir að vera það hehe..

Saga að opna gjöfina frá okkur.. við vorum 6 saman úr vinnuni sem gáfum henni saman.. og fékk hún glæsilega og veglega gjöf úr tantra.. gellan ekkert smá sátt við það hehe


neinei fékk hún ekki nammi g-streng.. hlýtur að bragðast vel þessi brók hehe..

Heiðrún og ég á góðri stundu.. góður svipur hjá mér

já ég er aðeins að reyna að sleikja eyrnasnepilinn á heiðrúnu haha.. neinei segi nú svona.

Þyrí, Klara og ég ..
Þetta var gott kvöld í alla staði
Jæja komið nóg af blaðri í bili.. bleee
Páskarnir búnir
Á miðvikudaginn fyrir páska fórum við í samfloti með mömmu og pabba, karen og hrafnhildi vinkonu hennar norður á Krók, Komum þar um kvöldið.
Á fimmtudeginum var nú lítið annað gert en að hanga inni því veðrið bauð ekkert upp á útiveru. Ég, mamma og amma þurftum samt að fara í búðina og þar var nú hægara sagt en gert því það var svo mikill skafrenningur að það sást ekkert á milli staura og hvað þá húsa. Mamma stoppaði tvisvar á skagfirðingarbrautinni því það sást bókstaflega ekkert nema hvítt í allar áttir. Sáum ekki einu sinni götuna, staurana, gangstéttina, húsin bara alls ekki neitt. Þá fórum við og náðum í pabba og hann keyrði okkur upp í búð en það var samt sama sagan, við þurftum að keyra á 5-10 km hraða og stoppa mjög reglulega því ekkert sást.
Um kvöldið reyndar var veðrið farið að skána og við skelltum okkur í kirkjuna og hlustuðum á Pál Óskar og Monicu, það var mjög fínt og alveg troðfull kirkjan, hefði nú reyndar viljað heyra fleiri lög sem ég þekki en þau tóku mörg falleg lög.
Á föstudaginn langa var gott veður og um kvöldið borðuðum við góðann mat og kíktum á barinn, þrjár kynslóðir skemmtu sér þarna saman og var það ekkert smá gaman. Afi minn var hress og skellti sér á barinn með okkur og þegar við ætluðum heim kl hálf 2 og vorum komin út þá leit afi á klukkuna og sagði ,, hvað er þetta við erum ekkert að fara heim strax,, þannig það var snúið við inn aftur og vorum við þar inni til kl 3.
Ég dansaði upp úr skónum því gólfið var svo klístrað að skórnir festust við gólfið haha.. þetta er ekki grín eða ýkjur.
Á laugardaginn var pínu þynnka í gangi en samt ekkert alvarlegt. Aftur var farið í búðina og keyptum við páskalærin. Síðan var matarboð um kvöldið heima hjá óla frænda, það var heldur rólegra fólkið það kvöld en það voru einhverjir sem skelltu sér á barinn og það var mjög gaman.
Bæði kvöldin var barinn fullur af fólki, á föstudagskvöldið var hljómsveitin Spútnik að spila og því heldur meira af ungu fólki en á laugardagskvöldinu var Geirmundur sjálfur sveiflukóngurinn að spila og aldursbilið hækkaði ögn. Samt er það nú alltaf þannig fyrir norðan að allar kynslóðir djamma saman og skemmta sér konunglega.
Sunnudagurinn var þunnur dagur. Við borðuðum læri í hádeginu og svo var lagt af stað suður fljótlega eftir hádegi. Þá var haldið heim til Ellu systur mömmu og Bigga í mat, fengum rækjukokteil í forrétt, önd og hátíðarkjúkling í aðallrétt og súkkulaðiköku og ís í eftirrétt. mmmmm góóður matur..
Þegar ég kom heim um kvöldið þá lagðist ég í sófann og steinrotaðist, gjörsamlega búin á því eftir helgina.
Á mánudaginn var matarboð á Laufásveginum í hádeginu og um kvöldið var mexíkósk súpa hjá Árna og Lovísu. Síðan var það bara sófinn og kósýheit.. það tekur ansi mikið á að éta svona stíft í marga daga :)
Í dag mætti ég síðan í fossvogsskóla á skipulagsdag kennara og á morgun er minn fyrsti kennsludagur
og ég hlakka mjög mikið til. Þessi bekkur sem ég er að taka við er svo frábær, þessir krakkar eru snillingar og ekkert nema skemmtilegir, þetta mun án efa vera skemmtileg reynsla.Jæja ég hef svosem engu skemmtilegur við þetta að bæta nema að tvær stúlkur á frístundaheimilinu voru handvissar um að ég væri vampíra vegna þess að það er mynd af mér þar sem ég er með rauð augu. haha.. en ég held nú að það sé búið að leiðrétta misskilinginn því ég sýndi þeim að ég sést í spegli og ég borða hvítlauk. HEHE börn eru með svo mikið ímyndunarafl.

Ja hérna hér!!
- Drakk 6 kvöld í röð, hehe úff.. síðasta kvöldið var síðan bara bíógláp
- Fórum á þorrblót íslendingafélagsins sem var mikið fjör
- mikill einkahúmor átti sér stað
- það voru mega margir stigar upp í íbúðina hennar sylvíu og árna þannig maður var alltaf búin á því
- verslaði eitthvað en ekki samt brjálæðislega mikið
- hjá þeim býr köttur sem gerir ekki annað en að breima
- fórum í sightseeing bus og sáum alveg fullt flott og stórmerkilegt
- skoðuðum La Sagrada Familia kirkjuna hans Gaudi
- Sá einnig fleiri gaudi hús
- sá fullt að flottum og merkilegum listaverkum
- skoðuðum picasso safnið
- sá hórur og transsvestide hórur
- Allstaðar voru gaurar á kvöldin að selja dósir af bjór á eina evru
- röltbjór svokallaður hehe
- borðuðum mjög góðann hamborgara með bestu frönskum sem ég hef smakkað
- fór í sex shop sem var með svona peepshow og runkklefum
- drakk mikið af fanta limon
En Sylvía og Árni takk kærlega fyrir mig.. ég skemmti mér mjög vel með ykkur.. þið eruð eðall

Flugferðin heim var nú heldur betur það furðulegasta flug sem ég hef á ævi minni lent í.. ég ætla að segja örlítið um hana hérna en ekki nein mikil smáatriði, þið sem þekkið mig vel ég mun segja ykkur frá smáatriðunum beint.
Allavega þá var svo mikill mótvindur þannig að flugmaðurinn tilkynnti að það yrði hálftíma töf vegna vinds, og síðan þegar sirka kl tími var liðinn af fluginu var okkur tilkynnt að vegna mjög mikils mótvinds þá þyrftum við að lenda í skotlandi til að taka meira eldsneyti.. þá var einn flugdólgur ekki sáttur og hótaði ýmsu og lét illa.. síðan þegar við lentum í skotlandi var hann handtekinn og færður frá borði og skilinn eftir þar. síðan héldum við heim á leið og vorum lent í keflavík kl 4 í stað kl 2.
Þið sem viljið eins og ég sagði vita nánar um þennan atburð.. talk to me

Annars er ég bara að fara í skólann á morgun að læra á fullu.. gamanið búið búhú

Set inn myndir seinna..
Kveðja Elva





